Stefna Hafralækjarskóla
Hafralækjarskóli starfar eftir lögum nr. 91/2008 um grunnskóla.
Samkvæmt lögum eru markmið grunnskóla tvenns konar, almenn menntun sem stuðlar að alhliða þroska og virkri þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi og undirbúningur nemenda fyrir frekara nám og þátttöku í atvinnulífi.
Við leggjum áherslu á:
- að allir innan stofnunarinnar, jafnt nemendur sem starfsfólk, njóti tækifæra til að auka hæfni sína og eflast sem einstaklingar
- fjölbreyttar náms- og kennsluaðferðir ásamt hvetjandi vinnuumhverfi
- að styðja nemendur til að taka ábyrgð á eigin námi og temja sér sjálfstæði í vinnubrögðum eins og aldur og þroski leyfir
- að beita fjölbreyttu námsmati í þágu náms að hrósa fyrir vel unnin störf og gagnrýna á sanngjarnan máta
- uppbyggjandi uppeldisstefnu sem stuðlar að ábyrgðarkennd og sjálfstjórn
- að allir finni sig örugga í skólanum og milli aðila ríki gagnkvæmt traust
- að innan stofnunarinnar ríki jákvæð og heiðarleg samskipti
- að byggja upp jákvæðan metnað
- gott samstarf milli heimila og skóla
- að upplýsingagjöf sé virk og boðleiðir skýrar
- að efla með markvissri grenndarkennslu þekkingu á umhverfi okkar og samfélagi