Samstarf grunnskóladeildar og tónlistardeildar

 

Tónlistarskóli Hafralækjarskóla er rekinn sem deild við Hafralækjarskóla. Samstarf tónlistardeildar og grunnskóla er margvíslegt. Nemendur í hljóðfæranámi fá leyfi úr kennslustundum grunnskólans til að sækja tíma í tónlistardeild en þurfa engu að síður að standa skil á þeim verkefnum sem þeir hefðu annars unnið í grunnskólanáminu. Stundaskrá tónlistardeildar er gerð í samráði við kennara grunnskólans og í því samstarfi er reynt að taka tillit til þarfa nemandans og skipulags beggja skóladeilda.

Tónlistarnámið setur á margan hátt svip á starfið í grunnskólanum og er stór þáttur í hátíðahaldi skólans.