Samskipti heimila og skóla

 

Stuðningur foreldra við skólagöngu barna sinna er grundvallaratriði fyrir velferð þeirra og farsæla námsframvindu.  Þess vegna er mikilvægt  að gott samband sé á milli heimila og skóla og upplýsingar berist greiðlega á báða bóga. Almennum upplýsingum frá skóla til heimila er dreift með starfsáætlun, skólanámskrá, tölvupósti eða töskupósti. Frá heimilum koma upplýsingar um nemendur á neyðarkortum. Ýmis önnur samskipti milli heimila og skóla fara fram í tölvupósti, síma eða með heimsóknum. Foreldrar eru ávallt velkomnir í skólann, best er að þeir hafi samráð við umsjónarkennara eða skólastjóra um hentugan heimsóknartíma. Allir kennarar hafa símatíma sem auglýstur er í starfsáætlun og á heimasíðu.

Æskilegt er að foreldar fylgi börnum sínum á skólasetningu og skólaslit og á skipulögðum viðtaladögum koma þeir með börnum sínum og ræða við umsjónarkennara m.a. um líðan og stöðu nemandans og markmið hans í námi. Jólaföndurdagur er góður samvinnudagur, þá koma foreldrar gjarnan með börnum sínum í skólann og aðstoða þau við föndurgerðina. Vorþemadagar eru í samstarfi við heimilin þar sem nemendur fá að kynnast ýmsum vorverkum í samfélaginu.

Á hátíðum skólans skemmta nemendur foreldrum, systkinum og öðrum gestum með leik og söng.

Foreldrafélag er starfandi við skólann. Hlutverk þess er að vinna að ýmsum hagsmunamálum fyrir nemendur og standa fyrir fræðsluerindum fyrir foreldra. Aðalfundur þess er haldinn í september ár hvert.

Tvennir foreldrar úr þriðja, sjötta og níunda bekk eru skipaðir til setu í stigsráðum sem eru þrjú. Fulltrúar frá foreldrum starfa í skólaráði og grænfánanefnd skólans.