Öðruvísi dagar
Til að auka fjölbreytni í skólastarfinu leggjum við stundum hefðbundna stundskrá til hliðar og tökumst á við öðruvísi verkefni.
- Skólaferðalag er farið annað hvert ár og tveir elstu árgangar skólans fara hverju sinni. Gert er ráð fyrir ferðalagi innanlands þar sem kennari er fararstjóri. Skólinn setur reglur um skólaferðalag og hvernig fjármögnun er háttað í samráði við foreldra.
- Skólinn nýtir tækifæri eða leitar eftir gestum sem geta fært nemendum fjölbreyttan fróðleik eða skemmtun.
- Dansnámskeið er haldið á hverju skólaári. Allir nemendur taka þátt í því námskeiði sér að kostnaðarlausu. Við lok námskeiðs er danssýning.
- Á hverjum vetri er farið í dagsferð á skíði til Akureyrar með alla nemendur skólans.
- Á aðventu er haldinn jólaföndurdagur. Þann dag eru foreldrar hvattir til að mæta með börnum sínum í skólann. Dagskráin hefst úti en þá eru ljós tendruð á jólatré á skólalóðinni og síðan er unnið jólaföndur á nokkrum verkstæðum.
- Á vorönn tekur skólinn þátt í Upplestrarhátíð á Húsavík. Þar keppa 7. bekkingar við jafnaldra úr nágrannaskólunum í upplestri. Í skólanum er forkeppni þar sem nemendur 4. bekkjar til 7. bekkjar keppa um tiltilinn „besti lesari bekkjarins“. Sigurvegar í 7. bekk taka síðan þátt í sýslukeppninni.
- Af og til koma nemendur og starfsfólk saman í setustofu, hluta úr kennslund, sér til fróðleiks og skemmtunar. Þá er gjarnan sungið, lesið og/eða leikið.
- Haustþemadagar eru í upphafi skólaárs. Þá daga er lögð áhersla á náttúrufræði og landafræði í nágrenni okkar. Nemendur fara af bæ lengri eða skemmri ferðir.
- Vorþemadagar eru í lok skólaárs. Þá gefst nemendum tækifæri á að kynnast vorverkum í samfélaginu. Unnið er í nánu samstarfi við heimilin á skólasvæðinu sem taka á móti nemendum og kynna þeim ýmis störf.
- Á hátíðum skólans gefst tækifæri til að koma á framfæri afrakstri af vinnu nemenda. Áhersla er lögð á að allir nemendur taki virkan þátt í hátíðum skólans með einum eða öðrum hætti. Árshátíð er haldin á haustönn og setur undirbúningur hennar svip sinn á skólastarfið vikurnar fyrir hana. Sama má segja um þorrablótið sem haldið er í febrúar en þar sér mötuneyti skólans um að útbúa hlaðborð með þjóðlegum mat. Skemmtidagskrá þorrablóts byggist að miklu leyti á tónlist. Hátíðarnar eru fjölsóttar af fólki úr skólasamfélaginu og lýkur með dansleik, þar sem kynslóðabil er ekkert.
- Litlujól eru haldin síðasta dag fyrir jólafrí. Þann dag koma nemendur leikskólans og taka þátt í hátíðardagskrá með grunnskólanemendum.
- Á hverju vori eru haldnir vortónleikar tónlistardeildar. Þar koma nemendur fram og flytja áheyrendum afrakstur vetrarstarfsins.