Námsmat – skimanir – kannanir
Í stigsnámskrá er gerð grein fyrir því hvernig námsmat fer fram í hverri grein. Algengast er að einkunnir nemenda samanstandi af mati á verkefnum, ástundun í námi, niðurstöðum kannanna og prófum í lok annar.
Eftirtaldar skimanir eru lagðar fyrir nemendur:
1. bekkur – Lesskimunarpróf
2. bekkur - Lesskimunarpróf
2. – 7. bekkur Stafsetningarkönnun
4. bekkur - Samræmt próf í stærðfræði og íslensku
7. bekkur - Samræmt próf í stærðfræði og íslensku
8. – 9. bekkur - GPR - greinandi lestrar- og stafsetningar skimun
10. bekkur - Samræmt próf í stærðfræði, ensku og íslensku