Námsgreinar
Kennsla í Hafralækjarskóla er skipulögð í samræmi við markmið aðalnámskrár grunnskóla og tímaskipting milli námsgreina er unnin í samræmi við viðmiðunarstundaskrá. Aðalnámskrá má finna á vefslóðinni:
http://www.menntamalaraduneyti.is/utgefid-efni/namskrar//nr/3953.
Á hverju hausti er unnin stigsnámskrá þar sem koma fram upplýsingar um námsefni, kennsluhætti, heimanám og námsmat í hverri grein.
Í aðalnámskrá grunnskóla eru skilgreind markmið allra námsgreina. Kröfur um almenna og sértæka hæfni nemenda eru settar fram sem hæfniviðmið. Þessi lykilhæfni vísar til þekkingar jafnt sem vinnubragða og er skilgreind við lok 4. bekkjar, 7. bekkjar og 10. bekkjar.
Heimanám
Í stigsnámskrá er gerð grein fyrir heimanámi þar sem það á við. Með heimanámi gefst foreldrum tækifæri til að fylgjast með námi barna sinna og veita þeim mikilvægan stuðning við að bera ábyrgð á eigin námi. Nemendum gefst þá tækifæri til setjast niður og ígrunda viðfangsefnin og venjast því að hafa yfirsýn yfir námið og skipuleggja vinnu sína.