Námsgögn

 

Til að ná námsmarkmiðum aðalnámskrár eru margvísleg námsgögn nauðsynleg. Nemendur þurfa að eiga: skólatösku og pennaveski með helstu ritföngum. Nemendur þurfa að eiga íþróttatösku með íþróttafötum, skóm og handklæði. Námsbækur sem nemendur fá í skólanum eru ýmist til eignar eða láns. Nemendur fá þessar bækur að gjöf frá skólanum:

4. bekkur -  Kortabók

5. bekkur -  Finnbjörg og Skólaljóð

8. bekkur -  Málfinnur og Skriffinnur

Auk hefðbundinna námsbóka eru til í skólanum ýmis námsgögn sem nemendur hafa aðgang að.

Námsgagnaúrval hefur aukist á undanförnum árum. Ýmsir góðir námsvefir hafa verið gerðir sem nýtast bæði vel í skólanum og heima. Á vef Námsgagnastofnunar www.nams.is er ágætt úrval af hljóðbókum, fræðslumyndum og gagnvirku efni.