Nám og kennsla
Samkvæmt grunnskólalögum ber skólanum að stuðla að alhliða þroska allra nemenda, skapa þeim öryggi og hvetjandi námsumhverfi. Í starfi skólans er beitt fjölbreyttum náms- og kennsluaðferðum. Þannig er leitast við að koma til móts við mismunandi þarfir nemenda. Nemendur hafa rétt á að setja fram sín sjónarmið varðandi skólastarfið og tekið skal tillit til þeirra eftir föngum.
Starf í grunnskóla snýst um að þroska og mennta einstaklinginn og einnig að undirbúa hann undir frekara nám og starf. Almenn menntun styrkir þá hæfni einstaklingsins sem er talin nauðsynleg til að viðkomandi geti lifað og unnið í sátt við sjálfan sig.
Grundvallarréttindi allra nemenda eru að hafa vinnufrið í skólanum. Nemendur þurfa að læra að temja sér sjálfsaga, að umgangast hvern annan í sátt og samlyndi og taka ábyrgð á eigin framkomu, hegðun og námi.