Lög og reglur
Skólinn starfar samkvæmt gildandi lögum um grunnskóla og aðalnámskrá grunnskóla. Nánari upplýsingar um lög og gildandi reglugerðir má m.a. finna á vefum:
Kennarasambands Íslands
http://fg.ki.is/pages/530
Sambands íslenskra sveitarfélaga
http://www.samband.is/verkefnin/skolamal/log-og-reglugerdir/
Skólareglur
Skólareglurnar okkar voru settar í samráði við nemendur, foreldra og kennara árið 2001.
Til þess að skólinn verði öruggur og eftirsóknarverður vinnustaður og skólastarfið skili ásættanlegum árangri þurfum við að hafa eftirfarandi í huga:
- Almenn háttvísi í samskiptum er nauðsynleg. Orðfæri á að vanda sem og alla framkomu.
- Stundvísi og ástundun náms eru dyggðir sem allir eiga að tileinka sér.
- Nemendur hlýði tilmælum starfsfólks.
- Ágreining skal útkljá af sáttarhug.
- Nemendur sýni eigin eigum virðingu og einnig eigum annarra og skólans.
- Nemendur komi eingöngu með þann útbúnað í skólann sem tengist skólahaldinu nema að starfsmenn skólans heimili annað.
- Nemendur fylgi settum öryggis- og umgengnisreglum.
- Neysla á sælgæti og gosdrykkjum er öllu jafna óheimil á skólatíma.
- Tóbaks- og áfengisneysla nemenda sem og önnur vímuefnanotkun er stranglega bönnuð.
Ofangreindar reglur gilda einnig utan skólans þar sem nemendur eru í hans nafni, svo sem á ferðalögum, skemmtunum og þess háttar.
Til að öryggis sé gætt skulu nemendur:
- mæta búnir í skólann eftir veðurfari.
- ekki mæta með neitt það í skólann sem hættulegt getur talist.
- ekki koma á vélknúnum ökutækjum í skólann sem þeir sjálfir stjórna.
- halda sig á leik- og íþróttavöllum við skólann.
- við félagsstörf halda sig innan dyra nema að starfsmaður á vakt heimili annað.
- á hjólabrettum, reiðhjólum, línuskautum og öðru slíku gæta þess að öðrum stafi ekki hætta af umferð þeirra. Munið hjálma og hlífar samkvæmt gildandi umferðarreglum.
- fylgja fyrirmælum starfsfólks skólans. Sérstaklega er það mikilvægt þar sem umgangast þarf vélar, tæki og annan búnað.
- sýna aðgát við skólabíla og virða ábendingar starfsfólks og bílstjóra.
- sitja með bílbeltin spennt í skólabílnum. Þau má ekki losa fyrr en bíllinn hefur numið staðar þar sem viðkomandi fer út úr honum.
Umgengnisreglur
Tillitssemi og snyrtimennska auðvelda okkur öllum að eiga farsælan dag í skólanum.
- Allir fari úr útiskóm á mottu í andyri, gangi frá þeim í hillur og hengi yfirhafnir á snaga.
- Töskur og pokar fari á viðeigandi staði.
- Notkun tyggigúmmís er bönnuð á skólatíma.
- Forðast skal hlaup og háreysti innan dyra.
- Í matsal skal fylgja almennum borðsiðum og ganga á frá eftir sig. Engar húfur og yfirhafnir þar.
- Mat á ekki að bera úr matsalnum til neyslu annars staðar í skólanum.
- Í tölvuveri má eingöngu vera í forritum og efni sem eru innan almennra siðgæðismarka.
- Nemendum sem hafa aðgang að tölvum, sal Ýdala, æfingaaðstöðu og öðru slíku ber að fylgja settri dagskipan.
- Í leikjum á að sýna drengskap og kurteisi.
Kennarar geta sett umgengnisreglur sem gilda í þeirra tímum og stofum. Þær þarf að kynna foreldrum og nemendum sérstaklega.
Ef út af bregður
Ef nemandi getur ekki einhverra hluta vegna farið eftir reglum skólans skal meta það í ljósi aðstæðna og eftir eðli málsins. Í flestum tilfellum fer eftirfarandi atburðarrás af stað:
- Í fyrstu er nemandi áminntur af viðkomandi starfsmanni.
- Ef nemandi lætur sér ekki segjast er haft samband við umsjónarkennara sem ræðir við nemandann um hegðun hans og framkomu. Á þessum tímapunkti þarf nemandi eða kennari stundum að hafa samband við forráðamenn og tilkynna þeim málavexti.
- Ef málið er alvarlegt eða brýnt hefur umsjónarkennari eða skólastjóri samband við forráðamenn.
- Ef nemanda er vísað úr tíma ræðir skólastjóri, viðkomandi kennari og/eða umsjónarkennari við nemandann. Slíkt skal tilkynna skólastjóra.
- Ef nemandi getur ekki sótt skóla tímabundið sökum framkomu sinnar og hegðunar skal strax tilkynna það forráðamönnum og fræðslunefnd. Skólinn treystir sér ekki að taka viðkomandi nemanda inn í skólann aftur fyrr en forráðamenn og nemandinn hafa rætt málið við skólastjóra og umsjónarkennara.
- Í mjög alvarlegum tilfellum þar sem skólinn treystir sér alls ekki til þess að bera ábyrgð á viðkomandi nemanda er málinu vísað til barnaverndarnefndar og fræðslunefndar til úrlausnar.
- Mál sem talin eru varða við hegningarlög eru tilkynnt lögreglu og/eða barnaverndarnefnd.
Athugið!
Nemendur sem ekki fylgja settum reglum geta ekki vænst að fá að taka þátt í félagslífi skólans eða nota félagsaðstöðu og þess háttar.