Aðstaða – umhverfi

 

Á aðalhæð hússins eru kennslustofur miðstigs og unglingastigs, tónlistarskóli, skrifstofur, kaffistofa starfsfólks, starfsaðstaða kennara, tölvustofa sem einnig er félagsaðstaða nemenda, mötuneyti og setustofa.

Í vesturkjallara eru kennslustofur yngstastigs og leikaðstaða fyrir gæslu yngri nemenda. Í suðurkjallara eru smíðastofa, heimilisfræðistofa, textílmenntar-stofa og myndmenntarstofa auk tónlistarherbergis, þrekaðstöðu, gufubaðs og búningsaðstöðu sundlaugar. Sunnan við húsið er 12 m löng afgirt sundlaug. Á efri hæð hússins er námsver, skrifstofa námsráðgjafa og skólahjúkrunar-fræðings auk heimavistarherbergja.

Skólalóðin er stór og umhverfið fjölbreytt. Leiksvæði nemenda er sunnan og austan við skólann. Á lóðinni eru fótboltavellir, körfuboltavöllur, leiktæki og sandkassi.

Í Félagsheimilinu Ýdölum er íþróttasalur nemenda, baðaðstaða og bókasafn.