S
M
Þ
M
F
F
L
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
11
12
13
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður

Sumarið 2009 var Tónlistarskóli Hafralækjarskóla gerður að deild innan Hafralækjarskóla.

Hafralækjarskóli og tónlistarskólinn þar eru vel þekktir fyrir öflugt, metnaðarfullt og fjölbreytt tónlistarstarf. Má nefna m.a. uppfærslur á söngleikjum og jafnvel óperum, marimbahljómsveitir og afrískt tónlistarverkefni og ekki síst tónsköpun barnanna. Margir nemendur halda áfram tónlistarnámi í framhaldsskóla og nokkrir hafa náð framúrskarandi árangri og vinna í dag sem atvinnutónlistarmenn. Aðrir eru meðlimir í dægurlaga- og rokk hljómsveitum eða spila áfram, sér og öðrum til ánægju - enda tilgangur tónlistarnáms ekki að búa til tónlistarmenn í nútíma atvinnu skilningi þess orðs, heldur til að efla manneskjuna, samfélagið og einstaklinginn!

 

Tónlistardeild Hafralækjarskóla þjónar aðallega nemendum Hafralækjarskóla og leikskólans Barnaborgar í Aðaldal, en námið er opið öllum íbúum á skólasvæði óháð aldri.

 

Tónlistarskóli Hafralækjarskólavar stofnaður 1978. Frumkvæði að stofnun hans áttu Guðmundur Norðdahl tónlistarkennari, Sigmar Ólafsson skólastjóri og skólanefnd Hafralækjarskóla undir forystu sr. Sigurður Guðmundssonar. Robert Faulkner kom að skólanum 1987 og stýrði honum með litlum hléum til ársins 2008. Gróa Hreinsdóttir var skólastjóri skólans frá áramótum 2008 til júlíloka 2009 er skólinn var gerður að deild innan Hafralækjarskóla, þá tók Mauricio Weimar við til vorsins 2011. Deildarstjóri tónlistardeildar nú er Guðni Bragason.

 

Tónlistardeild Hafralækjarskólahefur sérstöðu meðal tónlistarskóla landsins vegna sérstaks samstarfs við grunnskólann þar sem mikil áhersla er lögð á listgreinakennslu og einkum tónmennt. Hér er um að ræða samstarf um innri skipulagningu og rekstur og ekki síður faglega samræmingu tónmennta og hljóðfæra/tónlistarkennslu og við almennt tónlistarlíf skólans og samfélagsins.

 

Aðalmarkmið tónlistardeildar grunnskólans er að bjóða nemendum heildstætt, fjölbreytt og krefjandi tónlistarnám sem :

  • Stuðlar að aukinni hæfni nemenda til flytja, greina og skapa tónlist og til að hlusta á tónlist og njóta hennar.
  • Búa nemendur undir að geta iðkað tónlist upp á eigin spýtur.
  • Stuðlar að fjölbreyttu og metnaðarfullu tónlistarlífi í skóla og samfélagi.

 

Starfsemi skólans má skipta í eftirfarandi þætti:

  • Hljóðfæra- og söngnám
  • Kór
  • Tónlistarkennslu í Leikskólanum Barnaborg
  • Marimba og afrískt verkefni
  • Söngleiki, leiklist og óperuflutning
  • Samstarf tónlistarskólans og grunnskólans

 

Samstarf tónlistarskólans og grunnskólans

Frá upphafi var fléttað saman starfi tónlistar- og grunnskóla. Nemendur sóttu tíma í tónlistarnámi aðallega á skólatíma grunnskólans. Einnig var og er húsnæði og búnaður skólanna samnýttur eins og kostur er. Á sínum tíma var slíkt nokkurt nýmæli og ekki var spáð vel fyrir þessari tilraun. Í seinni tíð hefur svipað skipulag verið tekið upp víða um land. Oft hefur reynst erfitt að aðgreina starfsemi tónlistarskólans og grunnskólans, enda ekki talin nein sérstök þörf á því. Faglegt samstarf felst aðallega í:

  • Notkun hljóðfæra sem nemendur eru að læra á í tónlistarskóla í tónmenntakennslu grunnskólans til:
    1. Tónleikshalds, flutnings, hlustunar og greiningar
    2. Sköpunar, tónsmíða og spuna
    3. Bekkjar útsetninga og samspils
    4. Sérstakra verkefna s.s. samkeppni reyklausra bekkja
  • Samverustundum, árshátíðum, þorrablóti og við allar helstu hátíðir svo og almennt félagslíf
  •  Nánu samráði við umsjónarkennara og sérgreinakennara nemanda

 

Leikskólinn Barnaborg

Tónlistarskóli Hafralækjarskóla sér um markvisst tónlistaruppeldi í Leikskólanum Barnaborg í Aðaldal. Hér er um að ræða tónlistarkennslu allra barna 1 árs – 5 ára tvisvar í viku. Áherslan er lögð á söng, notkun hljóðfæra, hlustun og hreyfingu í samræmi við Aðalnámskrá Leikskóla Mmr. 1999.
Fyrir utan þessa kennslu eru börn leikskólans í daglegum söngstundum og ýmissi annarri tónlistariðkun í höndum leikskólakennara.
Sjá skólanámskrá Leikskólans Barnaborgar Aðaldælahreppi.

 

 

Söngleikir, leiklist og óperuflutningur

Í samstarfi við grunnskólann og ýmsa aðra aðila hefur Tónlistarskóli Hafralækjarskóla tekið þátt í eftirfarandi uppfærslum á söngleikjum og óperum:

- Amahl og næturgestirnir– Gian Carlo Mennoti
- Ull í gull
- Þóra Borgarhjörtur– Borgar Þórarinsson og Oddur Bjarni Þorkelsson (frumsamið af gömlum nemendum skólans)
- Jósef og frakki hans– Andrew Lloyd-Webber
- Jónas í Hvalnum– Michael Hurd
- Adam í Eden– Michael Hurd
- Ný tiðindi– Michael Hurd
- Oliver!– Lionel Bart (í samstarfi við Leikfélag Búkolla)

Styttar uppfærslur af:

- Messias mannssonur– Andrew Lloyd Weber
- Grease– Jim Jacobs og Waren Casey
- Grettir– eftir Ólaf Hauk Símonarson, Þórarinn Eldjárn og Egil Ólafsson.
- Kardemommubærinn– Thorbjörn Egner
- Þættir úr söngleikjum Jóns Múla og Jónas Árnasonar
- Emil í Kattholti– Astrid Lindgren
- Dýrin í Hálsaskógi- Thorbjörn Egner

- Óvitarnir- Guðrún Helgadóttir

- Gauragangur- Ólafur Haukur Símonarson

- Skilaboðaskjóðan –eftir Þorvaldur Þorsteinsson

 

Einnig hefur skólinn unnið í samstarfi við Íslensku óperuna að sýningum á Brúðkaupi Figarós og Töfraflautunni eftir Mozart í félagsheimilinu að Ýdölum.

 

Samstarf við kennaradeildir háskólanna, rannsóknir, námsefnisgerð og greinar

Kennaranemar frá kennaradeild Háskólans á Akureyri, Listaháskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands eru reglulegir gestir. Auk æfingakennslu í tónmennt, hafa nemendur sótt námskeið sem eru hluti af námi þeirra í viðkomandi háskóla, í Hafalækjarskóla, bæði hjá Robert Faulkner og einnig hjá marimbasveitum skólans. Árið 2005 hófst samstarf við LHÍ þar sem nemendur þaðan dvelja í Hafralækjarskóla í nokkra daga á vor misserum. Auk þess hefur Tónlistarskólinn verið í samstarf við kennarar frá Malmö Tónlistaháskóla í Svipjóð vegna afríska verkefnisins.

Góð tónlistarkennsla byggist bæði á tónlistarfærni kennarans svo og þekkingu hans á kennsluaðferðum og á tengdum fræðum og rannsóknum. Rannsóknir og athuganir gera kennara kleift að meta, þróa og breyta kennslunni á markvissan hátt til að mæta mismunandi þörfum nemenda og samfélagsins. Kennarar skólans hafa unnið að rannsóknum, námsefnisgerð og greinaskrifum sem tengist starfsemi skólans, tónlistaruppeldi og tónlist í samfélaginu. Sumt hefur verið gefið út, annað er fáanlegt hjá tónlistarskólanum:

-Faulkner, R. (2003). Group Composing: pupil perceptions from a social psychological study. Music Education Research, 5, 3, 2003.
-Faulkner, R. (2001). Why not the bagpipes? A study of the reasons why people choose to play a particular instrument. (Fjölrit: Robert Faulkner)

-Faulkner, R. (1994). Hver þarfnast tónlistar? Heimili og skóli 1,2.
-Faulkner, R (1994). Tillaga að sameiginlegri námskrá í tónlistaruppeldi. Borgarhólskóli, Tónlistarskóli Húsavíkur, Leikskólinn Bestibær (Fjölrit: Tónlistarskóla Húsavíkur).

-Faulkner, R. (1993). Virkir þátttakendur. Reykjavík: Námsgagnastofnun

-Faulkner, R & Bjartmarsdóttir, H. (1995). Tónlist, myndir og tákn. Aðaldal: Robert Faulkner.

-Faulkner, R. & Davidson, J.W. (2004) Men’s Vocal Behaviour and the Construction of Self. Musicæ Scientiæ: The Journal of the European Society for the Cognitive Sciences of Music VIII, 2.

-Harðardóttir, A., Faulkner, R. & Sigurjónsdóttir, S. (1993). Samstarf almennra kennara og tónmenntakennara. Uppeldi og menntun, 2. arg. Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands.

-Ingólfsson, P. (2004). Félagakennsla – afrisk tónlist í íslenskum skóla BA verkefni við Háskólann á Akureyri. Unpublished.

-Ólafsson, S. & Faulkner, R. (1990). Mega allir vera með? Ný menntamál 2, 8.

 

Marimba og afrískt verkefni

“Um afríska tóna í íslenskri sveit”

Er fjölmenningar tónlistarverkefni sem hófst að frumkvæði Tónlistarskóla Hafralækjarskóla í S.- Þingeyjarsýslu árið 2003 þar sem unnið er með afrísk hljóðfæri – marimba – mbira – djembe – og framandi tónlist, söng og dans aðallega frá Zimbabwe og suður-hluti Afríku.

Markmið:

- að víkka tónlistarreynsla og heimsmynd nemenda og samfélagsins
- að læra á framandi hljóðfæri
- að þróa viðeigandi kennsluaðferðir
- að auka hæfni nemenda sem tónlistarmanna – einkum tónheyrn og samspil.

Hafralækjarskóli var fyrsti skólinn á Íslandi að hefja vinnu markvisst með þessa tónlist sem nýtur vaxandi vinsælda bæði í Evrópu og Bandaríkjunum.

 

Africa on Ice!

Haustið 2005 gaf marimbasveit skólans út disk Africa on Ice sem er fáanlegur hjá Hafralækjarskóla og versluninni 12 Tónar í Reykjavík.

 

Forsaga verkefnisins:

Árið 2002 heimsótti stúlkna marimba sveit, Tanhatu Marimba, frá Kulturskolen í Fredrikstad í Noregi, Hafralækjarskóla og héldu stutta tónleika fyrir nemendur skólans. Árið 2003 endurtók Tanhatu Marimba heimsókn þeirra til Hafralækjarskóla, dvöldu þar í nokkra daga og kenndi nemendum skólans á nýfengið hljóðfæri frá Zimbabwe. Haustið 200 5 heimsótti marimba sveitin Zimba Marimba frá Svíþjóð, Hafralækjarskóla til að kenna nemendum skólans. Haustið 2006 fóru Vipepe Marimba á námskeið til Svíþjóðar.

 

Nemendur skólans hafa haldið námskeiði fyrir kennaranema úr Háskólanum á Akureyri og Listaháskóla Íslands. Haustið 2004 kenndu nemendur jafnöldrum sínum frá Húsavík og Akureyri sem hyggjast fara af stað með svipað verkefni.

Auk þess er verkefnið fastur liður í tónmenntakennslu í Hafralækjarskóla frá 3.-8. bekk og eru nú orðnar fjórar 7-8 manna marimba hljómsveitir starfandi við skólann.

 

Hljómsveitir skólans hafa komið víða fram:

Vipepe Marimba

Tónleikar “Fjölskylduferð til Afríku” á Reyðarfirði og Eskifirði 2005-11-29
Tónleikar “Fjölskylduferð til Afríku” á Akureyri og í Eyjafirði 2006
Matur og menningardagar Blöndós 2005
Hrísey fjölskyldu hátíð 2005
Mærudagar á Húsavík 2006
Hamingjudagur á Hólmavík 2006
Landsmót UMFÍ 2006
Tónleikar í Staffantorp, Malmo, Svipjóð 2006

 

Inkose Marimba
Hamingjudagur á Hólmavík 2006
Landsmót UMFÍ 2006
Mærudagar á Húsavík 2006

Nyoka Marimba

Landsmót UMFÍ 2006
Mærudagar á Húsavík 2006

IceMarimba

Vetrarhátíð Reykjavíkur 2004
Tónleikar í Salnum í Kópavogi 2005
Andrésar Andar mót á Akureyri
Ísland í dag - Stöð 2

 

Nomwe Marimba

Flutning á Nordisk Musík Pedagogisk Union ráðstefnu í Salnum í Kópavogi 2003
Tónleikarferð til Færeyja og Hjaltlandseyja 2004
Tónleika með Karlakórnum Hreimi, Birgittu Haukdal, Garðari Thor Cortes, Ólafi Kjartani Sigurðurssyni, Sigrúnu Hjaltýrsdóttur og Rangnari Bjarnasyni að Ýdölum S.Þing 2004 og í Háskólabíói í Reykjavík 2005
Fiskihátíð Dalvík 2004

Marimbahópur 2010-2011

Nótan uppskeruhátið Tónlistarskólanna 2010

Akureyrarkirkju 2010

Hörpu 2010

Ráðstefna vegna opnunar Hörpu 2010

 

Wasichana Marimba

Hádegistónleikar í Landsbanka Íslands aðalútibúi 2011

Afmælistónleikar Tónmenntakennarafélags Íslands í Hörpu – Norðurljósasal 2011

Hrafnistu í Reykjavík 2011

 

Auk þess hafa hljómsveitirnar spilað á fjölmörgum samkomum, árshátíðum og í útvarpinu auk þess hafa hóparnir haldið fjölmörg námskeið.

 

Bergnumin - Afríka on Ice !

Geisladiskarnir Bergnumin með kór Hafralækjarskóla og Africa on Ice með marimba tónlist eru fáanlegir.

Verð kr. 1000 ( 1500 ef báðir diskar eru keyptir).

Hægt er að panta diskana á gudni@hafralaekjarskoli.is