S
M
Þ
M
F
F
L
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
11
12
13
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður

Almennt um próf.  

Skólinn starfar samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskóla og greinanámskrám hennar. Skólinn er jafnframt aðili að Prófanefnd tónlistarskóla sem starfar samkvæmt ákvæðum aðalnámskrár. Við skólann eru því tekin próf samkvæmt reglum Prófanefndar. Sjá hér að neðan.

 

Um próf í hljóðfæra- og söngnámi.

Hljóðfæra- og söngnámi í tónlistarskóla er skipt niður í þrjá námsáfanga: Grunnnám, miðnám og framhaldsnám.  

Við lok hvers námsáfanga eru tekin áfangapróf: Grunnpróf, miðpróf og framhaldspróf.  Framhaldsprófið er undanfari háskólanáms í tónlist og jafnframt burtfararpróf frá skólanum.

 

Áfangaprófin eru metin af sérþjálfuðum prófdómurum á vegum Prófanefndar tónlistarskóla. Til þess að áfangapróf séu fullgild, þurfa nemendur að ljúka viðeigandi námi í tónfræðagreinum á sama skólaári eða að hafa lokið því áður.

Nokkur námsár geta liðið á milli áfangaprófanna, þar sem nemendur þurfa að hafa náð ákveðinni færni í tækni og túlkun tónverka og ákveðin námsefnisyfirferð þarf að vera að baki.

 

Árspróf

Þeir nemendur sem ekki taka áfangapróf að vori, þurfa að taka skólapróf, svokölluð árspróf. Ársprófin innihalda alla þá sömu prófliði og áfangaprófin, en færri atriði af hverjum próflið og eru þau því smækkuð mynd af áfangaprófunum. Með því að taka árspróf árlega þau námsár sem líða á milli áfangaprófa,  þjálfast nemendur í prófformi áfangaprófanna og ættu því að vera betur undirbúnir fyrir þau.