S
M
Þ
M
F
F
L
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
11
12
13
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður

Wasichana Marimba

Hljómsveitin Wasichana Marimba, sem er skipuð sjö stúlkum af unglingastigi Hafralækjarskóla, gerði víðreisn á höfuðborgarsvæðinu í októberlok. Hljómsveitin lék í Aðalútibúi Landsbankans í Austurstræti á föstudeginum og síðar þann dag í Hörpunni á hátíðartónleikum Tónmenntakennarafélags Íslands. Þá voru stúlkurnar með námskeið fyrir nemendur í Álftamýrarskóla og á laugardeginum léku þær á dvalarheimilinu Hrafnistu í Reykjavík.

 

Að sögn Guðna Bragasonar deildarstjóra tónlistardeildar Hafralækjarskóla fengu stúlkurnar frábærar viðtökur þar sem þær komu fram. Húsfyllir var í Norðurljósasal Hörpunnar og mikil stemming en á milli 300 - 400 börn komu fram á tónleikunum. Marimbahópurinn frá Hafralækjarskóla var sérstakur gestur hátíðarinnar og var það atriði sem kom lengst að og í stuttu máli þá heilluðu stúlkurnar áhorfendur með flottum leik og líflegri sviðsframkomu.

Frétt af 640.is