S
M
Þ
M
F
F
L
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
11
12
13
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður

Stoðþjónusta

 

Í grunnskólalögum er ákvæði um að grunnskólinn skuli leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við stöðu og þarfir nemenda. Til að uppfylla það ákvæði veitir skólinn stuðning og sérkennslu, einstaklingum eða smærri hópum, í þeim viðfangsefnum sem þörf þykir hverju sinni. Flestir nemendur skólans njóta þessa stuðnings einhvern tíma á skólagöngu sinni. Í sumum tilfellum fer þessi stuðningur fram inni í bekkjarstofu en stundum í námsveri.

Umsjónarkennarar fylgjast náið með námi nemenda sinna og því í flestum tilfellum þeir aðilar sem hafa frumkvæði að nánari greiningu á námsstöðu nemenda. Forráðamenn geta einnig óskað eftir slíkri greiningu. Skólastjóri getur veitt nemanda undanþágu frá skyldunámi í tiltekinni námsgein ef gild rök mæla með því.

 

Náms- og starfsráðgjafi

 

Hlutverk námsráðgjafa er að standa vörð um velferð allra nemenda, styðja þá og liðsinna þeim í málum er snerta nám, skólavist, framhaldsnám og starfsval. Námsráðgjöf er persónuleg leiðsögn við nemendur og fer fram í trúnaði.

Námsráðgjafi vinnur bæði með einstaklinga og hópa. Hann  hefur samráð og samstarf við aðra sérfræðinga s.s. sérkennara, hjúkrunarfræðing og skólasálfræðing og vísar málum einstaklinga til þeirra eftir því sem við á. Hann vinnur einnig í samráði við foreldra, situr stundum fundi í nemendaverndarráði.

 

Félagsþjónusta Norðurþings

 

Skólinn þiggur þjónustu af Félagsþjónustu Norðurþings. Henni er ætlað að veita skólum faglega þjónustu sem kveðið er á um í grunnskólalögum. Sú þjónusta felst m.a. í kennsluráðgjöf og sálfræðiþjónustu. Einnig er veitt aðstoð við þróunarverkefni í grunnskólum og skipulag á endurmenntun kennara.

Þegar um aðstoð eða greiningu fyrir einstaklinga er að ræða er meginreglan sú að skólinn útbýr tilvísun og sendir Félagsþjónustunni. Tilvísanir eru unnar í samráði við umsjónarkennara og foreldra og undirritaðar af skólastjóra. 

Ef stærri áföll verða er unnið eftir áfallaáætlun sem til er í skólanum.

Samkvæmt 16. gr. laga um barnavernd er hverjum þeim sem hefur ástæðu til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, verði fyrir áreitni eða ofbeldi eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu er skylt að tilkynna það barnavernarnefnd. Neyðarlínan 112 tekur við slíkum tilkynningum.

 


 

 

Hvert skal leita?

 

Telji foreldrar og starfsfólk að barn eigi í vanda eða aðstoðar sé þörf sýnir meðfylgjandi tafla hvert má leita.

 

 

1. Hvert er hægt að leita innan skólans?

2. Aðrir sem gætu komið að málinu auk foreldra.

Almennir námsörðugleikar

Umsjónarkennari Skólastjóri

Námsráðgjafi

Félagsþjónusta Norðurþings

Sálfræðingur

Einelti

Umsjónarkennari

Skólastjóri

Skólahjúkrunarfræðingur Námsráðgjafi

Sálfræðingur

 

Fíkniefnanotkun

Umsjónarkennari Skólahjúkrunarfræðingur Skólastjóri

Námsráðgjafi

Barnaverndarnefnd

Félagsþjónusta Norðurþings

Sálfræðingur

Lögregla

Hegðunarörðugleikar

Umsjónarkennari Skólastjóri

Sérkennari/Námsráðgj.

Sálfræðingur

Lestrarörðugleikar

Umsjónarkennari

Félagsþjónusta Norðurþings

Ofbeldi

Umsjónarkennari

Skólahjúkrunarfræðingur

Skólastjóri

Barnaverndarnefnd

Félagsþjónusta Norðurþings

Lögregla

Sálfræðingur

Óöryggi / veik

sjálfsmynd

Umsjónarkennari Skólahjúkrunarfræðingur Skólastjóri

Námsráðgjafi

Sálfræðingur

 

Samskiptaörðugleikar

Umsjónarkennari Skólastjóri

Námsráðgjafi

Sálfræðingur

Sorg, ástvinamissir

eða skilnaður

Umsjónarkennari Skólastjóri Skólahjúkrunarfræðingur Námsráðgjafi

Prestur

Sálfræðingur

 

Val á framhaldsnámi

Námsráðgjafi Umsjónarkennari Skólastjóri

Framhaldsskólar

Vanræksla

Umsjónarkennari Skólahjúkrunarfræðingur Skólastjóri

Barnaverndarnefnd

Félagsþjónusta Norðurþings

Sálfræðingur

 


 

 

Heilsugæsla

 

Heilsuvernd skólabarna verður með líku sniði og verið hefur undanfarin ár. Skólahjúkrunarfræðingur er Katrín Guðmundsdóttir. Hún verður í Hafralækjarskóla einu sinni í mánuði í vetur.

 

Tilkynnt verður síðar hvenær skólaskoðun verður í skólanum.  Læknir frá heilsugæslustöðinni á Húsavík og skólahjúkrunarfræðingur hafa samvinnu um heilbrigðiseftirlit með nemendum og verður framkvæmd þess sem hér segir:

 

1. bekkur

Börn sjónprófuð, heyrnarmæld, hæðarmæld og vigtuð. Fræðsla um hollustu, tennur, tannhirðu og hreinlæti.

2. bekkur

Fræðsla um svefn og hvíld og hamingju.

3. bekkur

Fræðsla um hreyfingu og mataræði.

4. bekkur

Börn vigtuð, hæðarmæld, sjón- og litarskynsprófuð. Læknisskoðun framkvæmd. Fræðsla um slysavarnir, tannheilsu og hamingju.

5. bekkur

Fræðsla um hreyfingu, hollustu og hamingju.

6. bekkur

Kynþroskafræðsla.

7. bekkur

Börn vigtuð, hæðarmæld og sjón- og litarskynsprófuð.  Bólusett við mislingum, rauðum hundum og hettusótt (ein sprauta). Fræðsla um tannvernd, hamingju og kynheilbrigði

8. bekkur

Spurningarblað um heilsu og líðan.  Fræðsla um hreyfingu, mataræði og kynheilbrigði.

9. bekkur

Börn vigtuð, hæðarmæld og sjónprófuð. Læknisskoðun framkvæmd.  Bólusett gegn mænusótt,  barnaveiki  stífkrampa  og kíghósta (ein sprauta).  Spurningarblað úr 8. bekk rætt aftur við hvern og einn. Fræðsla um hamingju, hugrekki  og kynheilbrigði.

10. bekkur

Útskriftarviðtal um lífið og tilveruna.

 

Hjúkrunarfræðingur mun sinna skipulagðri fræðslu, um er að ræða einstaklingsbundna fræðslu/ráðgjöf og hópfræðslu af ýmsu tagi. Lagt verður spurningarblað  fyrir börn í 8. bekk um andlega og líkamlega líðan þeirra, sýn  þeirra á lífið og framtíðina. Síðan er rætt við þau hvert og eitt um svörin.  Þetta blað er síðan tekið upp aftur ári síðar og rætt við þau um hvort eitthvað sé breytt.

 

Þar sem tveir eða fleiri árgangar eru saman í stofu hefur fræðslan oft skipst milli ára í þeim árgöngum.  Öllum börnum er gefinn kostur á viðtali við hjúkrunarfræðing árlega. Þeim börnum sem eitthvað finnst athugunarvert hjá er fylgt eftir.  Náin samvinna er höfð við kennara um velferð nemenda, og situr hjúkrunarfræðingur í nemendaverndarráði.   Foreldrar eru hvattir til þess að hafa samband við skólahjúkrunarfræðing ef breytingar verða á heilsufari barna þeirra, líkamlegu og/eða andlegu, eða ef einhverjar spurningar vakna.

Með von um gott samstarf.

Katrín Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur.