Keypt er slysatrygging af Vátryggingafélagi Íslands. Um trygginguna gilda eftirfarandi skilmálar:
· Tryggingin tekur til allra nemenda sem eru skráðir í grunnskóla sem rekinn er af sveitarfélagi.
· Aldur barnsins skiptir ekki máli.
· Tryggingin gildir þann tíma sem skólinn starfar.
· Tryggingin nær til hvers skólabarns sem verður fyrir slysi í eða við skólann og til og frá heimili að skólanum.
· Tryggingin gildir einnig á ferðalögum á vegum skólans.
· Tryggingin tekur til hvers skólabarns sem verður fyrir slysi eða dauða af völdum slyss, hvernig sem slysið ber að og hver sem á sök á því og hvort sem slysið verður við nám eða leik.
Tryggt er sem hér segir:
|
Slysakostnaður |
Við örorku (100%) |
Við andlát |
Eigin áhætta |
|
303.000 |
4.458.000 |
445.000 |
18.000 |