Neyðarkort eru útbúin/yfirfarin í upphafi skólaárs fyrir hvern nemanda. Á þeim eru upplýsingar um aðstandendur og símanúmer þannig að fljótlegt sé að ná sambandi við foreldra ef slys eða veikindi ber að höndum í skólanum. Á neyðarkortum kemur fram hvort nemendur hafi sjúkdóma eða ofnæmi sem starfsfólk skóla þarf að vita af og eins hvort nemendur geti ekki eða megi ekki borða einhverja fæðu. Mikilvægt er að foreldrar tilkynni skóla ef breytingar verða á fyrirliggjandi upplýsingum.