Mötuneyti Hafralækjarskóla verður rekið með líku sniði og síðustu vetur. Í morgunmat er boðið upp á morgunkorn, hafragraut og slátur, brauð, ávexti og mjólkurmat. Gefnir verða út matseðlar einu sinni í mánuði þar sem fram kemur hvað verður á boðstólum í hádegismat. Í vetur verður nemendum einnig boðið upp á ávexti á miðjum morgni. Matseðlar verða birtir á heimasíðu skólans en óhjákvæmilega geta orðið breytingar á matseðli, t.d. ef hráefnið berst ekki á tilsettum tíma.
Fullt fæði, þ.e. morgunmatur og hádegismatur mun kosta 56.000 kr. næsta skólaár. Fjórðungur heildarupphæðarinnar eða kr. 14.000 verða innheimtar í byrjun október, desember, febrúar og apríl. Við lokauppgjör í júní verður innheimt fyrir úttekt í ritfangabúð og endurgreitt fæði vegna forfalla nemenda ef þau hafa verið samfelld í viku eða lengur.
Greiðslur til mötuneytis skulu lagðar inn á tékkareikning mötuneytis í Íslandsbanka á Húsavík 0567-26-10602 og kennitalan er 580899-2779.
Matseðill mánaðarins