Skólinn leggur áherslu á að félagslíf nemenda sé öflugt og að sem flestir séu virkir á þeim vettvangi. Nemendur í stjórn Nemendafélags Hafralækjarskóla skipuleggja félagslífið sjálfir með aðstoð kennara. Það er því að miklu leyti undir dugnaði og hugmyndaauðgi nemenda komið hversu öflugt og fjölbreytt félagslífið verður. Dæmi um vinsæla viðburði eru: diskótek, vídeókvöld og „langir dagar“. Að jafnaði eru viðburðir í félagslífi aðra hverja viku. Skólinn sér um akstur á jóla-og lokadiskótek auk ferða á nemendamót.
Nemendur reka sjoppu á diskótekum og öðrum samkomum skólans til ágóða fyrir nemendafélagið. Umsjón með henni hafa tveir nemendur úr 8.-10. bekk.
Viðburðir í félagslífi eru eingöngu ætlaðir nemendum í 7. – 10. bekk. Ef nemendur vilja bjóða vinum með sér á viðburð er hægt að sækja um leyfi hjá umsjónarkennara félagslífs. Nemendur sem ekki fylgja settum reglum geta ekki vænst að fá að taka þátt í félagslífi skólans eða nota félagsaðstöðu og þess háttar.
Einu sinni í mánuði er félagslíf fyrir alla nemendur í Þingeyjarsveit í einum skólanna þriggja.