S
M
Þ
M
F
F
L
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
18
19
20
21
22
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður
24. febrúar 2012
24. janúar 2012

Skemmtileg safnaferð

Við í 3. og 4. bekk og á miðstigi fórum í mjög skemmtilega safnaferð í síðustu viku á Safnahúsið á Húsavík. Ferðin var gerð til þess að skoða sýningu sem þar var uppi og er kölluð; Þetta vilja börnin sjá! Þetta er sýning af myndum sem skreyta barnabækur.

 

 

Börnin höfðu mjög gaman af þessu og fengu að velja í lokin hvaða myndskreytingar þeim fundust bestar. Ekki skemmdi fyrir að á síðasta skólaári unnu yngri nemendurnir með bók sem heitir Sófus og svínið, og voru myndir úr þeirri bók þarna til sýnis þar sem sú bók hefur unnið til verlauna fyrir myndskreytingu sína.

Þegar þessari skoðun var lokið þá fengu yngri nemendurnir að sjá byggðasafnssýninguna í safnahúsinu og þau eldri að fylgjast með. Að því búnu fengu eldri nemendur að skoða sjóminjasafnið og þau yngri að fylgjast með sem vildu.

Við fórum í gegn um þessar glæstu sýningar undir leiðsögn Sifjar Jóhannesdóttur sem við teljum okkur eiga talsvert í þar sem hún bjó hér í skólanum, og kenndi hér, fyrir ekkert “svo löngu” að okkur finnst. Meðfram þessu öllu þá litum við líka við á bókasafninu og skoðuðum bækur. Það er alltaf gaman að koma í nýtt umhverfi og sjá hvað er á boðstólum annarstaðar.

Með þessari ferð fylgja myndir í myndasafni heimasíðunnar þar sem sjá má áhugasama nemendur á ferð.